716834
14
Zoom out
Zoom in
Vorherige Seite
1/36
Nächste Seite
14
IS
Ráð fyrir öryggi og umhirðu
Ÿ Lesið leiðbeiningarnar áður en grillið er notað!
Ÿ Fylgið öllum viðvörunum og leiðbeiningum við notkun
grillsins. Ef leiðbeiningarnar eru ekki lesnar eða ef þeim
er ekki fylgt getur það leitt til alvarlegs líkams- og/eða
eignatjóns.
Ÿ Geymið leiðbeiningarnar til að fletta upp í þeim síðar.
Ÿ Ef spurningar vakna við lestur á leiðbeiningunum skal
hafa samband við söluaðila á viðkomandi stað.
Ÿ Notið ekki grillið nema það sé fullsamsett og allir íhlutar
þess hafi verið festir og hertir.
Ÿ Aðeins til heimilisnota. Notið ekki við eldamennsku í
atvinnuskyni.
Leiðbeiningar fyrir notkun og uppkveikju
Ÿ Grillið er hannað til að vera notað með viðarkolamolum
eða viðarkolastykkjum. Notið ekki meira en 1,0 kg af
viðarkolum.
Ÿ Setjið grillið upp á öruggum stað.
Ÿ Hitið upp grillið og haldið eldsneytinu rauðglóandi í að
minnsta kosti 30 mínútur áður en eldamennska hefst.
Ÿ Fyrir fyrstu eldamennsku á grillinu:
a. Burstið allt yfirborð að innanverðu, þar á meðal grill og
ristar, með jurtaolíu.
b. Kveikið lítinn eld í kolakassanum.
c. Lokið lokinu þegar logarnir sjatna, opnið loftop um ¼ úr
snúningi. Brennslan ætti að vara í að minnsta kosti 30
mínútur.
1.Raðið viðarkolum í þríhyrningslaga köst í miðju
kolakassans.
2.Kveikið í viðarkolunum með hentugum eldkveiki sem
uppfyllir EN1860-3. Kveikið ávallt eld með grilllokið opið.
Hafið lokið opið á meðan það logar í viðarkolunum.
3.Setjið aldrei kveikilög á heit viðarkol því eldur kann að gjósa
upp og valda meiðslum.
4.Þegar viðarkolin hafa myndað öskulag og logarnir sjatnað
(12-15 mínútur) skal jafna kolunum út í kolakassanum.
5.Setjið grillristarnar aftur á og lokið lokinu til að hita
eldunaryfirborðið.
6. Hefjið ekki eldamennsku fyrr en öskulag hefur myndast á
kolunum.
VIÐVÖRUN
Ÿ Opnið ávallt lokið ÁÐUR en lúgan að kolakassanum er
opnuð til að athuga með eldinn eða eldsneytið.
Ÿ Opnið öskulúguna ávallt hægt og rólega. Reynið aldrei að
horfa inn í grillið ef kolalúgan er opnuð þegar grillið er í
notkun.
Ÿ Ef leiðbeiningunum er ekki fylgt getur það leitt til meiðsla.
Ÿ Óbrennt gas getur safnast upp og valdið skyndilegum eldi
ef lokið er ekki opnað fyrst.
VARÚÐ
Ÿ Sumir hlutar kunna að vera með skarpar brúnir! Notið
hlífðarhanska ef þörf krefur.
Ÿ Flest allt yfirborð grillsins er heitt við notkun. Sýnið ýtrustu
varúð. Snertið ekki málmhluti á grillinu fyrr en það hefur
kólnað alveg niður til að koma í veg fyrir brunasár, nema
hlífðarhanskar séu notaðir.
VIÐVÖRUN
Ÿ ATHUGIÐ! Grillið verður mjög heitt, færið það ekki við
notkun.
Ÿ Notið ekki innandyra! Grillið er aðeins til notkunar utandyra.
Ÿ Notið grillið á svæði með góðri loftræstingu.
Ÿ VIÐVÖRUN! Notið ekki spritt eða bensín til að kveikja eða
viðhalda eldi! Notið aðeins grillkveikivökva sem uppfylla
EN1860-3!
Ÿ VIÐVÖRUN! Haldið börnum og gæludýrum í burtu.
Ÿ Setja skal grillið upp á traustu og jöfnu undirlagi fyrir notkun.
Ÿ Notið ekki í minna en 1 m fjarlægð frá eldfimum mannvirkjum
eða yfirborði.
Ÿ Öskukassinn verður að vera alveg settur í við notkun. Ef hann
er ekki settur í með réttum hætti getur það valdið því að heit
eldglóð detti niður af grillinu.
Ÿ Brennsla á eldsneyti á föstu formi myndar lyktarlaust
koleinoxíð sem getur verið banvænt! Því skal aldrei nota
grillið innandyra, eða færa það inn ef ekki er búið að slökkva
að fullu í því.
Ÿ Þegar slökkt virðist hafa í kolaeldi geta óbrunnar eldglæður
geymt hita í allt að 24 klukkustundir og ef þær komast í
snertingu við ferskloft getur kviknað óvænt í þeim. Allar slíkar
eldglæður utan við eldhólf grillsins skapa hættu á eldsvoða
og geta kveikt í eldfimu yfirborði eins og viðarpöllum.
Ÿ Ef leiðbeiningar eru ekki lesnar um kveikingu í viðarkolum
eða þeim ekki fylgt getur það leitt til alvarlegs líkams- og eða
eignatjóns.
Ÿ Sýnið ávallt varúð við meðhöndlun á heitum kolum til að
koma í veg fyrir meiðsli.
Ÿ Kveikið ávallt upp í grillinu með grilllokið opið.
Viðhald
Ryð getur myndast á grillinu innanverðu. Ef þunnt lag af
jurtaolíu er reglulega borið á innanvert yfirborð grillsins mun
það hjálpa til við að verja grillið. Það getur þurft að viðhalda
ytra yfirborði grillsins af og til. Við mælum með notkun á
svörtum hitaþolnum málningarúða sem fá má í búðum.
MÁLIÐ ALDREI GRILLIÐ AÐ INNANVERÐU!
Tíðni þrifa fer eftir hversu oft grillið er notað.
Gangið úr skugga um að slökkt hafi verið að fullu í kolum
áður en grillið er þrifið að innanverðu. Skolið vandlega með
vatni og látið þorna að fullu áður en grillið er notað á ný.
Þurrkið grilli að innanverðu með klút eða pappírsþurrkum.
Þegar eldamennsku lýkur og grillið hefur kólnað niður í
fullnægjandi hita skal hreinsa út alla ösku. Aska safnar í sig
raka sem getur valdið ótímabæru ryði og skemmdum.
Ef stífur bursti er notaður til að þrífa eldunaryfirborð skal
gæta þess að engar leifar úr burstanum standi eftir á
eldunaryfirborðinu áður en grillað er. Ekki er ráðlagt að þrífa
eldunaryfirborðið á heitu grilli.
14

Brauchen Sie Hilfe? Stellen Sie Ihre Frage.

Forenregeln

Missbrauch melden von Frage und/oder Antwort

Libble nimmt den Missbrauch seiner Dienste sehr ernst. Wir setzen uns dafür ein, derartige Missbrauchsfälle gemäß den Gesetzen Ihres Heimatlandes zu behandeln. Wenn Sie eine Meldung übermitteln, überprüfen wir Ihre Informationen und ergreifen entsprechende Maßnahmen. Wir melden uns nur dann wieder bei Ihnen, wenn wir weitere Einzelheiten wissen müssen oder weitere Informationen für Sie haben.

Art des Missbrauchs:

Zum Beispiel antisemitische Inhalte, rassistische Inhalte oder Material, das zu einer Gewalttat führen könnte.

Beispielsweise eine Kreditkartennummer, persönliche Identifikationsnummer oder unveröffentlichte Privatadresse. Beachten Sie, dass E-Mail-Adressen und der vollständige Name nicht als private Informationen angesehen werden.

Forenregeln

Um zu sinnvolle Fragen zu kommen halten Sie sich bitte an folgende Spielregeln:

Neu registrieren

Registrieren auf E - Mails für Char-Broil Performance 3500 wenn:


Sie erhalten eine E-Mail, um sich für eine oder beide Optionen anzumelden.


Das Handbuch wird per E-Mail gesendet. Überprüfen Sie ihre E-Mail.

Wenn Sie innerhalb von 15 Minuten keine E-Mail mit dem Handbuch erhalten haben, kann es sein, dass Sie eine falsche E-Mail-Adresse eingegeben haben oder dass Ihr ISP eine maximale Größe eingestellt hat, um E-Mails zu erhalten, die kleiner als die Größe des Handbuchs sind.

Ihre Frage wurde zu diesem Forum hinzugefügt

Möchten Sie eine E-Mail erhalten, wenn neue Antworten und Fragen veröffentlicht werden? Geben Sie bitte Ihre Email-Adresse ein.



Info