812328
92
Zoom out
Zoom in
Vorherige Seite
1/94
Nächste Seite
OUTDOORCHEF.COM OUTDOORCHEF.COM
182 183
Ef grillið er oft dregið yfir ójöfnur skal kanna af og til hvort allar skrúfur eru fastar.
Ef grillið er ekki notað í lengri tíma skal framkvæma LEKAPRÓFUN áður en það er tekið í notkun á ný. Ef spurningar vakna skal snúa sér til
umboðsaðila gassins eða sölustaðar.
Til að forðast skemmdir vegna tæringar skal smyrja alla málmhluta með olíu áður en grillið er sett í geymslu í lengri tíma.
Eftir langan geymslutíma og a.m.k. einu sinni á grilltímabilinu skal athuga gasslönguna með tilliti til sprungna, brota og annarra skemmda.
Skiptið strax um skemmda gasslöngu eins og lýst er í kaflanum ÖRYGGISUPPLÝSINGAR.
Berið viðarolíu á alla viðarhluta einu sinni á ári – það vinnur gegn sprungumyndun.
Að hlífa grillinu fyrir umhverfisáhrifum með hentugri yfirbreiðslu frá OUTDOORCHEF sem sett er á eftir að grillið hefur kólnað að fullu.
Til að koma í veg fyrir raka skal fjarlægja yfirbreiðsluna eftir rigningu. Yfirbreiðslur fást hjá söluaðilum.
GERT VIÐ BILUN
Það kviknar ekki á brennaranum:
Athugið hvort opið er fyrir gasstreymið á kútnum.
Gangið úr skugga um að nóg gas sé á kútnum.
Athugið hvort neistar frá rafskautinu hlaupa yfir í brennarann.
VARÚÐ: Þegar þetta er athugað verður að vera skrúfað fyrir gasið á kútnum!
Enginn neisti:
Gangið úr skugga um að rafhlaðan hafi verið sett rétt í (á grillum með rafkveikingu).
Fjarlægðin milli brennara og rafskauts má ekki vera meiri en 5–8 mm.
Athugið hvort snúrur í rafkveikingu og rafskauti eru vel festar.
Setjið tvær nýjar rafhlöður (af gerðinni AAA, LR03, 1.5 Volt) í rafkveikjuna.
SAFETY LIGHT SYSTEM (SLS) virkar ekki:
Athugið hvort skrúfað hefur verið frá gasinu með gasstillihnöppunum. (Með skrúfað fyrir ventilinn á gaskútnum).
Gangið úr skugga um að hleðslurafhlöðurnar fyrir SLS-kerfið hafi verið settar rétt í og séu hlaðnar.
Ef hleðslurafhlöðurnar eru tómar getur þú stungið rafmagnssnúrunni, sem fylgir með, í samband til að hefja hleðsluna.
Ef ekki tekst að koma grillinu í gang með þessum úrræðum skal hafa samband við sölustað.
NOTENDAÁBYRGÐ
1. Ábyrgð og tenging við önnur réttindi kaupanda
Með kaupum á þessari OUTDOORCHEF vöru hjá viðurkenndum söluaðila færð þú sem kaupandi (notandi) hennar afhenta ábyrgð
framleiðandans Outdoorchef AG („OC“).
Ábyrgð framleiðanda gefur þér færi á að leggja fram kröfur á hendur ábyrgðarveitanda í samræmi við ákvæði þessa samnings. Ábyrgðarkröfur
gilda, auk annarra samningsbundinna eða lagalegra réttinda þinna. Þessi ábyrgð útilokar ekki eða takmarkar önnur réttindi. Þar af leiðandi getur
þú einnig lagt fram aðrar samningsbundnar eða lagalegar kröfur á hendur viðkomandi ábyrgðaraðilum hverju sinni. Þannig hefur þessi ábyrgð til
dæmis ekki áhrif á kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt lögum um skaðsemisábyrgð.
Sem kaupandi hefurðu einnig sérstakan möguleika á að leggja fram samningsbundnar ábyrgðarkröfur gagnvart seljandanum. Þannig er til dæmis
hægt að rifta kaupsamningnum aðeins gagnvart seljandanum en ekki gagnvart OC innan ramma þessarar ábyrgðar.
2. Samningsaðilar og ábyrgðarskilmálar
Ábyrgðarveitandi er OC. Rétt á ábyrgð eiga allir kaupendur sem kaupa nýja vöru til einkanota í viðurkenndri verslun. Leggja skal fram sölukvittun
til sönnunar á kaupum. Kaup til einkanota eru þegar varan er keypt af einstaklingi yfirleitt í þeim tilgangi að nota hana án þess að það sé í
atvinnuskyni eða í tengslum við sjálfstæðan atvinnurekstur.
Ef nýta á ábyrgðina verður að leggja fram ábyrgðarkröfuna fyrir ábyrgðarveitanda innan tveggja mánaða frá því ágalli kemur í ljós. Að öðrum kosti
er ekki hægt að leggja fram ábyrgðarkröfur. Ef um augljósa galla er að ræða hefst fresturinn við móttöku vörunnar. Af þessum sökum mælir OC
með því að skoða vöruna með tilliti til ágalla strax við móttöku.
3. Gildissvið
Ábyrgðin gildir frá kaupdegi og er veitt í eftirfarandi tilvikum, að því tilskildu að engin útilokun sé til staðar samkvæmt 4. tölulið:
3 ár fyrir gegnumryð á gljábrenndu kúlunni (neðri hluti og lok).
3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn á gljábrenndu grillgrindinni.
3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn á öllum hlutum úr ryðfríu stáli.
Galli í gljábrenningu fyrir fyrstu notkun
2 ár fyrir alla aðra framleiðslu-/efnisgalla
Til galla teljast ekki smávægilegar ójöfnur, litamismunur á gljábrenningu eða minniháttar útlitsgallar eins og á stoðpunktum á neðri brún loksins
eða festingum, sem hafa ekki áhrif á virkni vörunnar.
Ef um ábyrgðartilvik er að ræða mun OC annaðhvort skipta um skemmda eða gallaða hluti eða skipta út vörunni í heild sinni, að eigin vali. Að því
marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að vörunni verði skipt út fyrir sambærilega vöru af nýrri gerð, t.d. fyrir
aðra tegund. Svo framarlega sem virkni vörunnar er ekki skert vegna gallans og að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur
einnig hugsast að þér verði boðnar fullnægjandi fébætur í stað viðgerðar.
Á meðan unnið er úr ábyrgðarkröfu (skoðun og hugsanlega skipti á vöru) er ekki hægt að leggja fram kröfu gegn OC um nýja vöru eða frekari
bætur. Úrbætur vegna galla lengja hvorki ábyrgðartímann né endurnýja hann. Hlutir sem skipt hefur verið út verða eign OC. Aðeins þegar skipt
hefur verið um alla vöruna hefst ábyrgðartíminn að nýju.
Allar frekari kröfur á hendur ábyrgðarveitanda falla ekki undir þessa ábyrgð. Kröfur af öðrum lagalegum ástæðum eru þó ekki útilokaðar eða
takmarkaðar (sjá einnig hér að framan í kafla 1).
4. Undanskilið ábyrgð
Ábyrgðin gildir ekki í eftirfarandi tilvikum:
Eðlilegt slit við fyrirhugaða notkun, einkum á almennum slithlutum eins og trekt, neistaþökum, brennara, hitamæli, kveikingu og rafhlöðu,
rafskauti, kveikitaug, gasslöngu, gasþrýstijafnara, hitaelementi, endurkastara, hlífðarfilmu úr áli, grill- eða kolagrind, kveikigrind og kola-/
fitusafnbakka.
Skemmdir í gljábrenningu á notuðum vörum ef ekki er hægt að sanna að skemmdin var til staðar fyrir fyrstu notkun.
Bilanir og/eða skemmdir af völdum óviðeigandi eða rangrar notkunar, einkum vegna
þess að ekki var farið eftir notkunar- og öryggisleiðbeiningum eða viðhaldsleiðbeiningum (t.d. notkun á útigrillum innandyra, skemmdir vegna
rangrar samsetningar, rangra þrifa á gljábrenndum yfirborðsfleti trektarinnar eða grillgrindinni, vegna þess að lekaprófun var ekki framkvæmd
eins og ráðlagt er í notkunarleiðbeiningunum, vegna notkunar á skaðlegum íðefnum, vegna annarrar notkunar en fyrirhugaðrar o.s.frv.).
Bilun og/eða skemmdir sem stafa af inngripi eða viðgerðum framkvæmdum af aðilum sem OC hefur ekki viðurkennt.
Bilun og/eða skemmdir vegna veðurs (t.d. haglél eða eldingar).
Bilun og/eða skemmdir sem valdið er af ásetningi eða gáleysi, svo framarlega sem OC ber ekki ábyrgð á þeim.
Bilun og/eða skemmdir sem verða við flutning til kaupandans, svo framarlega sem ábyrgðarveitandinn ber ekki ábyrgð á þeim.
92

Brauchen Sie Hilfe? Stellen Sie Ihre Frage.

Forenregeln

Missbrauch melden von Frage und/oder Antwort

Libble nimmt den Missbrauch seiner Dienste sehr ernst. Wir setzen uns dafür ein, derartige Missbrauchsfälle gemäß den Gesetzen Ihres Heimatlandes zu behandeln. Wenn Sie eine Meldung übermitteln, überprüfen wir Ihre Informationen und ergreifen entsprechende Maßnahmen. Wir melden uns nur dann wieder bei Ihnen, wenn wir weitere Einzelheiten wissen müssen oder weitere Informationen für Sie haben.

Art des Missbrauchs:

Zum Beispiel antisemitische Inhalte, rassistische Inhalte oder Material, das zu einer Gewalttat führen könnte.

Beispielsweise eine Kreditkartennummer, persönliche Identifikationsnummer oder unveröffentlichte Privatadresse. Beachten Sie, dass E-Mail-Adressen und der vollständige Name nicht als private Informationen angesehen werden.

Forenregeln

Um zu sinnvolle Fragen zu kommen halten Sie sich bitte an folgende Spielregeln:

Neu registrieren

Registrieren auf E - Mails für Outdoorchef Lugano 570 G Evo wenn:


Sie erhalten eine E-Mail, um sich für eine oder beide Optionen anzumelden.


Andere Handbücher von Outdoorchef Lugano 570 G Evo

Outdoorchef Lugano 570 G Evo Installationsanweisung - Alle Sprachen - 20 seiten


Das Handbuch wird per E-Mail gesendet. Überprüfen Sie ihre E-Mail.

Wenn Sie innerhalb von 15 Minuten keine E-Mail mit dem Handbuch erhalten haben, kann es sein, dass Sie eine falsche E-Mail-Adresse eingegeben haben oder dass Ihr ISP eine maximale Größe eingestellt hat, um E-Mails zu erhalten, die kleiner als die Größe des Handbuchs sind.

Ihre Frage wurde zu diesem Forum hinzugefügt

Möchten Sie eine E-Mail erhalten, wenn neue Antworten und Fragen veröffentlicht werden? Geben Sie bitte Ihre Email-Adresse ein.



Info